Bloggiđ hans Bubba Morthens...

Hann Bubbi er međ vikulegan ţátt á Rás 2. Ţátturinn kallast Fćribandiđ og er á dagskrá á mánudagskvöldum.

Eflaust hinn ágćtasti ţáttur ţó ég hafi aldrei heyrt nema glefsur úr honum.

Ég hef heyrt nokkra innganga ađ ţćttinum hjá honum Bubba. Ţar gengur hann langt úr vegi sínum ađ hnýta í bloggara og bloggheima. Ţar setur hann alla undir sama hatt og sparar ekki stóru orđin um ţann arma hóp karla og kvenna sem blogga.

Mig og ađra samskonar asna....

Íronían í ţví ađ hann er auđvitađ ekkert annađ en bloggari sjálfur virđist fara alveg fram hjá honum. Sú stađreynd ađ hann bloggar í töluđu máli, á launum, í útvarpi allra starfsma...afsakiđ, ...landsmanna, breytir ţví ekki ađ hann er bara bloggari.

Hann meira ađ segja skreytir bloggiđ sitt međ tónlist...alveg einsog  Jens Guđ og fleiri.

Bloggiđ hans Bubba virkar líka soldiđ einsog Moggabloggiđ. Ţađ má nefnilega hringja inn. Um daginn heyrđi ég einhvern innhringjara lýsa ţví hvernig hann ćtti 60 milljónir íslenskar á reikningi erlendis sem honum dytti ekki í hug ađ fćra heim fyrr en gengiđ vćri almennilega fariđ til andskotans. Hann lýsti ţví líka hversu yndislegt ţađ vćri ađ sitja í kvöldsólinni á trillunni, á frjálsum handfćraveiđum....og fá sér eina ,,sérstaka sígarettu" sem hann geymdi í brjóstvasanum fyrir sérstök tilefni.

Bubbi saup kveljur og henti viđmćlandum snarlega útaf blogginu sínu.

Ég hinsvegar grenjađi af hlátri og lofađi sjálfum mér ţví ađ hlusta oftar á bloggiđ hans Bubba. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Magnús Birgisson

Höfundur

Magnús Birgisson
Magnús Birgisson
Eiginmaður og 3 barna faðir. Viðskiptafræðingur að mennt en hugsuður að upplagi (að eigin mati).
Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • snake-plissken
  • Þróun launavísitölu
  • Þróun launavísitölu
  • VIS04001200982441764
  • aygo vs. reva

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband