Fyrirsláttur ?

Ég verð að viðurkenna að ég skil þetta ekki. Maður fær á tilfinninguna að íslenska ríkið vilji ekki fara í mál við það breska. En af hverju? Eru þeir vissir um að tapa? Eru þeir hræddir um að eitthvað komi ljós við réttarhöld sem betra er að fari lágt? Samskipti? Aðgerðir? Aðgerðaleysi? Einhverjar upplýsingar um viðskiptahætti íslendinga sem íslensk stjórnvöld hafa kosið að líta framhjá en bresk stjórnvöld hafa upplýsingar um og standast ekki skoðun?

Hvað er málið eiginlega?

En ef íslensk stjórnvöld telja sig ekki hafa aðild að málinu þá er það bara fyrirsláttur.

Ef bara hluthafar geta farið í mál þá má benda á Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Hann átti án efa hlut í bönkunum. Íslenska ríkið gæti farið í mál fyrir hönd lífeyrissjóðsins eða lífeyrissjóðurinn beint með aðstoð ríkisins. Íslenska ríkið (skattgreiðendur) bera bakábyrgð á skuldbindingum lífeyrissjóðsins og því ákaflega mikilvægt að endurheimta sem mest af þessu fé.

Ef það eru kröfuhafar á bankana þá má benda á Seðlabankann. Hann lánaði fé til bankana með veðum í bréfum sem nú eru verðlaus. Getur ríkið fyrir hönd Seðlabankans ekki farið í mál við breska ríkið eða Seðlabankinn beint ? Lífeyrissjóðurinn átti án efa einnig skuldabréf gefin út af bönkunum og gæti komið hér að.

Eru einhver lög sem banna aðild þessara stofnana að dómsmálum? Alþjóðlegir samningar?

Mér finnst allavega næg tækifæri fyrir ríkið að pota sér að í svona dómsmáli ef áhugi væri á því. Afhverju virðist sá áhugi ekki vera fyrir hendi?


mbl.is Íslenska ríkið á ekki aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í ljósi þessara upplýsinga að íslenska ríkið sé ekki aðili að málinu, hlýtur sú krafa að vakna að þjóðin beri ekki kostnaðinn af klúðrinu.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 14:52

2 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Það ætti að fara að verða mönnum ljóst að Ingibjörg Sólrún er svo ástfangin af ESB að hún vill ekkert gera til að styggja  Brussurnar. Og Geir er svo hræddur við eitthvað að hann mun aldrei þora að taka af skarið, og fara að vinna fyrir  okkur. kanski að hann sé kominn með augastað á Seðlabanka stól.

Sigurjón Jónsson, 14.12.2008 kl. 15:00

3 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Tökum dæmi. Ég gengst í ábyrgð fyrir þig. Svo kemur einhver maður og drepur þig og stelur peningunum sem þú ert með á þér. en erfingiarnir þínir hafa ekki áhuga á að borga lánið sem ég var í ábyrgð fyrir, heldur vilja þeir að ég borgi. Þeir vita að þeir munu ekki fá mikið út úr búinu hvort sem er. (n.b. erfingjarnir eru hluthafar bankanna. Baugur og co.) Í þessari stöðu er ég beinn aðili að málinu og get lögsótt þig. hagsmunir mínir eru miklu meiri en erfingjanna , því ég get fengið mitt til baka en þeir ekki, minn er skaðinn og því er ég aðili að málinu.

Sigurjón Jónsson, 14.12.2008 kl. 15:15

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það sem H.T. sagði.

Villi Asgeirsson, 14.12.2008 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Magnús Birgisson

Höfundur

Magnús Birgisson
Magnús Birgisson
Eiginmaður og 3 barna faðir. Viðskiptafræðingur að mennt en hugsuður að upplagi (að eigin mati).
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • snake-plissken
  • Þróun launavísitölu
  • Þróun launavísitölu
  • VIS04001200982441764
  • aygo vs. reva

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband